12 vikna átak á Pressunni....

sá þessa grein rétt í þessu http://www.pressan.is/Veroldin/Lesagrein/tinna-aetlar-ad-komast-i-frabaert-form-a-naestu-12-vikum-einfalt-og-virkar-myndir- og er um konu sem er 98 kg og 165 cm.

Ætti ég að "fylgja" henni eftir? Ég er nottla í bootcamp 3x í viku en það er svona upp og ofan hvort ég mæti og lyfti eða ekki. En áætlunin er að mæta klukkan 6:00 (eða þegar ræktin opnar ss. 5:50 á morgnanna) 3x í viku og taka langa æfingu þ.e. mæta með prógram og lyfta í ca. 40 mín fyrir Bootcamp tíma. Ég ætla mér ss. að mæta passlega heit í tímann klukkan 6:50. Ég hef einu sinni náð þessu nokkurn veginn en vegna vesena þá var ég ekki komin fyrr en um 6:20 í lyftingasalinn.

 Haldiði að ég geti þetta?

 Heyriði já! fitness keppnirnar (expo sýningarhelgin) verða fyrstu helgina í nóvember og ég er 82,8 kg ég held að það sé útilokað að ég nái að verða tágrönn fyrir þann tíma. Ég stefndi á 58,5 kg til að komast upp á svið en ég er eins og ég nefndi hérna áðan 82,8 kg :S ekki gott

Ætli ég finni e-r ráð við því? rándýr ráð kannski?

 kveðja þar til næst

YY


próteinpannsan hennar Ellu Helgu (dexter's way)

mmmmm..., er að japla á hafragraut m/rúslum og bláberjum ásamt próteinpönnsu "samloku" (sjá uppskrift hjá Elínu Helgu (www.ellahelga.blog.is ). Oh og hún er svoooo góð! (datt nú ekki annað í hug).  Sit einnig og sötra heitann tebolla með grænu tei frá London Fruit and herb en það getur þú nælt þér í hjá O J KAABER ;) ofsalega gómsætt te

 ég hugsa að ég verði södd af þessu sko. 

og já! meðan ég man! Ég tók þessa líka góðu brennsluæfingu í morgun; 20 mín ganga með 2kg lóð í 5.5 - 6.0% halla og á hraða 5.5 - 6.0 og tók svo 21 mín í sipp + 3 x 5 upphýfingar ;) Hörkudugleg en finnst ég hafa svindlað smá þar sem ég notaðist við smá hjálp (stillir upphýfingartækið á viðeigandi þyngd og hýfir þig upp) annars er ekki fræðilegur hræðilegur að ég nái að hýfa mig upp. Þesi fjöldi upphýfinga er kannski bara passlegur þar til annað kemur í ljós en ég SKAL ná því einn daginn að hýfa mig upp án hjálpar ;)

 

kv. Ykkar yndislegust!

 


GYMBOSS-INN ER MÆTTUR

Keypti mér græju í vikunni á hreyst.is og lítur græjan svona út ( http://www.hreysti.is/?category=140 ). Vinur minn Gymboss á eftir að nýtast mér í ýmislegt, eins og bootcamp (þegar ég er ein að taka æfingu), lyftingar í sal og einnig í að skokka. Sko! hægt að nýta græjuna í allt muligt!

 

Prufaði græjuna daginn eftir að ég fékk hana í hendurnar og hún virkar ágætlega. Ég þarf bara að læra betur á hana

 

heyrumst  ;)

En já! kíkið á þessa vefsíðu ( www.bodyrock.tv ) og finnið prógramm sem hentar ykkur. Hún Zuzana reddar þessu hehe


komin aftur ;)

jæja nú er ég komin aftur eftir að hafa tekið mér pásu frá mblogginu um tíma. Bloggið mitt frá blogcentral er uppfullt af skilaboðum frá e-ju liði sem er ekkert að pæla hvað ég skrifaði í færslurnar svo ég færði mig hingað yfir.... aftur.

Ég er í miðjum módelfitness undirbúningi en miðað við árangur minn undanfarna mánuði er ég ekki að sjá mig stíga á svið fyrr en á þrítugsafmælinu mínu :S en ég skal halda í vonina. Ég skal ekki gefast upp!

Ég stunda Bootcamp ásamt lyftingum (Bootcamp er SKNELLD!) en ef því miður voða mikið on/off á þeim námskeiðum :S og segi alltaf við sjálfan mig að næsta námskeið muni ganga betur (sem reynist ekki sannleikurinn). Ég kíki líka reglulega á fröken Stunu á www.bodyrock.tv (eins og hún Ella Helga kallar hana (www.ellahelga.blog.is)) og fann mér rétt í þessu þessar líka fínustu hreyfi-refsingar (td. núna því að ég er í nammibindindi sem líkur 8. sept en hefur heldur betur verið á niðurleið síðasta mánuðinn :S)

ætli ég láti ekki fylgja mynd af mér svo fólk sjái hvernig ég lít út og kannski hvernig ég leit út? og þar sem ég kann ekki að copy paste-a myndum hingað beint á (kann það bara get það e-n veginn ekki núna) þá tengi ég bara skrá x 2 hér inn í staðinn...

þar til næst ;)

sjáumst.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband